Ítalskar samlokur með hráskinku

Þessar samlokur eru í miklu uppáhaldi í bústaðarferðum fjölskyldunnar. Þær hentar líka vel á veisluborð eða sem forréttur. Hugmyndin kemur frá Ítalíu þar sem piadinur eru vinsæll réttur en piadinur eru ítalskar samlokur úr þunnum hveitikökum með girnilegu áleggi. Ég hef ekki fundið slíkar kökur hér á landi og læt því tortillakökur duga.

piadina

Grillaðar ítalskar samlokur með hráskinku
Fullkominn partýréttur!
Skrifa umsögn
Prenta
Innihaldsefni
  1. 1 pakki tortillakökur
  2. Góð hráskinka
  3. Sýrður rjómi
  4. Mozarella ostur
  5. Kóríander (ekki stilkurinn)
Leiðbeiningar
  1. Smyrjið hverja köku með örlitlum sýrðum rjóma.
  2. Setjið eina sneið af hráskinu á aðra hlið kökunnar.
  3. Stráið söxuðu kóríander yfir.
  4. Stráið því næst rifnum mozarella yfir og lokið kökunni.
  5. Grillið á grillpönnu eða grillið uns osturinn hefur bráðnað og kakan tekin að gyllast.
EatRVK https://eatrvk.is/

One Comment on “Ítalskar samlokur með hráskinku

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *