Stökkt banana- og kókosgranóla

Ég les utan á allar umbúðir áður en ég ég kaupi matvæli þar sem oftar en ekki er búið að stútfylla þau af aukaefnum, svo þetta er nánast ekki matur lengur heldur iðnaðarvara. Ég forðast til dæmis að kaupa nokkuð þar sem sykur eða sterkja er eitt af fyrstu fjórum innihaldsefnunum, því röð efnanna í innihaldslýsingunni fer eftir hlutfalli magns þeirra í vörunni.

múslí

Ég elska múslí og granóla en oftar en ekki er búið að bæta við sýrópi, sykri eða miklu magni af hunangi. Það er vissulega bragðgott og dásmlegt á sunnudögum en ekki sniðugt að byrja alla morgna á slíkum sykurrússíbana. Því geri ég mitt eigið granóla sem er bragðmikið, stökkt, trefjaríkt og hollt. Vissulega má bæta við hunangi ef fólk vill hafa það sætt en það stendur fyllilega undir sér án þess.

20160429_105458

Stökkt kókos- og bananagranóla
Stökkt, trefjaríkt og án allra aukaefna!
Skrifa umsögn
Prenta
Innihaldsefni
  1. 1 stór og vel þroskaður banani
  2. 4 msk kókosolía
  3. 1 msk vanilluessens
  4. Salt á hnífsoddi , örlítið salt dregur fram sætuna úr banönunum.
  5. 100 gr tröllahafrar
  6. 50 gr kókosflögur
  7. 50 gr saxaðar hnetur, t.d. pekan, valhnetur, möndlur, hesilhnetur eða blanda af þeim öllum
  8. 2 msk chiafræ
  9. 2 msk sólblómafræ eða hörfræ
  10. 2 msk gojiber, smátt saxaðar döðlur, apríkósur, rúsínur eða þurrkuð epli
  11. 1 tsk kanill ef vill
Leiðbeiningar
  1. Stappið banana vel og hrærið bræddri kókosolíu, kanil og vanilluessens saman við. Setjið blönduna til hliðar.
  2. Blandið öllum hinum innihaldsefnunum saman í skál.
  3. Hellið bananablöndunni saman við og blandið vel saman með höndunum. Blandan á að loða létt saman. Ef hún loðir nánast ekkert saman þarf aðeins meiri banana og olíublöndu.
  4. Dreifið blöndunni yfir bökunarpappír á bökunarplötu. Passið að rúsínur eða þurrkaðir ávextir standi ekki upp úr heldur séu þakin blöndunni, annars brenna þau.
  5. Bakið neðarlega í ofninum á 180 gráðum í 25 mínútur eða þar til blandan verður gyllt og stökk (verður enn stökkari við að kólna). Gott er að hræra 2-3 sinnum í blöndunni yfir bökunartímann.
  6. Kælið og geymið í loftþéttum umbúðum.
Athugasemdir
  1. Múslíið er gott í kökubotna, eplakökur, hafraklatta, út á skyr eða jógúrt eða með hnetu-, kókos- eða kúamjólk!
EatRVK https://eatrvk.is/

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *