Salat með austurlenskum áhrifum

Fara í uppskrift

Ég hef alltaf heillast af austurlenskri matargerð og finnst gaman að leika mér með krydd og annað sem maður notar í þessháttar matseld. Þetta salat er dásamleg blanda þar sem tveir heimar, sá íslenski og austurlenski mætast. Salatið er geggjað sem meðlæti með öllum mat eða jafnvel sem aðalréttur, maður getur varla hætt að borða það. Það er vegan og stútfullt af hollustu og bragðlaukarnir verða ekki fyrir vonbrigðum. Þegar ég skelli í þetta salat geri ég alltaf extra til að eiga í nesti í vinnuna. Ekkert mál er að hafa önnur hráefni en finnst mér sérstaklega gott að nota hvítkál eða rauðkál sem er stökkt og passar fullkomlega með dressingunni.

Úr eldhúsinu

Geggjað salat

Hráefni

Merktu við það sem er komið.

Geggjað salat

Dressing sem klikkar ekki

Aðferð

  1. Blandið saman dressingu og geymið í krukku til hliðar. Setjið allt grænmeti í skál og þegar á að bera fram salatið, skreytið það með ristuðum möndluflögum og sesamfræjum eftir smekk. Hægt er að gera dressinguna nokkrum dögum áður og geymist hún vel í lokuðu íláti í ísskáp. Þegar ég tek salatið með í veislu eða vinnuna, hef ég dressinguna í sér krukku og ristuðu sesamfræin og möndlurnar líka svo allt verði brakandi ferskt.

Við eldhúsborðið

Athugasemdir

Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.

Skildu eftir athugasemd

Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.