Epla- og kanil múslí

Fullkomið trít! Hvort sem er í kökubotna, út á grauta eða jógúrt nú eða til að borða eitt og sér þar sem múslíð er nokkuð „chunky“ eða hnullungað.

20160717_214209

Epla- og kanilmúslí
Skrifa umsögn
Prenta
Innihaldsefni
  1. 100 gr grófir hafrar
  2. 40 gr þurrkuð epli
  3. 50 gr kókosflögur
  4. 50 gr saxaðar hnetur t.d. möndlur og pekanhnetur
  5. 3 msk saxaðar rúsínur eða döðlur
  6. 2 msk chia fræ
  7. 2 msk hörfræ
  8. 1 msk kanil
  9. Salt a hnífsoddi (örlítið salt dregur fram sætuna úr banananum)
  10. 1 stór vel þroskaður banani
  11. 5 msk kókosolía
  12. 1 tsk góð vanila
Leiðbeiningar
  1. Stappið banana vel og hrærið bræddri kókosolíu, kanil og vanillu saman við. Setjið blönduna til hliðar.
  2. Blandið öllum hinum innihaldsefnunum saman í skál.
  3. Hellið bananablöndunni saman við og blandið vel saman með höndunum. Blandan á að loða létt saman. Ef hún loðir nánast ekkert saman þarf aðeins meiri banana og olíublöndu.
  4. Dreifið blöndunni yfir bökunarpappír á bökunarplötu. Passið að rúsínur eða þurrkaðir ávextir standi ekki upp úr heldur séu þakin blöndunni, annars brenna þau.
  5. Bakið neðarlega í ofninum á 180 gráðum í 25 mínútur eða þar til blandan verður gyllt og stökk (verður enn stökkari við að kólna). Gott er að hræra 2-3 sinnum í blöndunni yfir bökunartímann.
  6. Kælið og geymið í loftþéttum umbúðum.
EatRVK https://eatrvk.is/

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *