Leir fyrir lítil krútt

 

_DSC4373

Myndir: Íris Ann

Litli kúturinn minn elskar að leira og því ákvað ég að skella í heimagerðan leir. Gott er að gera sinn eigin leir því það er ódýrt og einfalt, hann er ekki með neinum aukaefnum og það er í lagi að borða hann þó hann myndi seint flokkast sem góður!  Ég hef prufað að gera margar tegundir af leir en þessi uppskrift er sú sem mér þykir þægilegast að gera. Góða skemmtun!

Leir fyrir lítil krútt
Einfaldur, fljólegur og ódýr leir fyrir börn og fullorðna. 🙂
Skrifa umsögn
Prenta
Innihaldsefni
  1. 1 bolli hveiti
  2. 1/2 bolli borðsalt
  3. 1 msk matarolía/ólífuolía
  4. 1/2 tsk cream of tartar
  5. 1 bolli sjóðandi vatn með matarlit að eigin vali út í
Leiðbeiningar
  1. Þurrefnin sett í skál.
  2. Olíunni og Vatninu með matarlitnum í er hellt yfir.
  3. Hrært vel með sleif þar til orðið eins og deig, þá tekið úr skálinni og hnoðað.
Athugasemdir
  1. Gott er að vera með hanska þar sem matarliturinn getur smitast. Mér finnst gott að sigta þurrefnin en það er ekki nauðsynlegt. Geymið í plastpoka eða boxi svo loft komist ekki að leirnum þegar hann er ekki í notkun.
EatRVK https://eatrvk.is/
leir_DSC437301

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *