Berjaís í morgunmat

Veðrið á að vera geggjað um helgina og því er upplagt að skella í nýjan holla ísuppskrift. Hér er önnur frábær uppskrift frá henni Elínu Arndísi og í þetta sinn er það berjaís sem hægt er að borða í öll mál. Börnin mín voru sérstaklega ánægð með þennan íspinna síðustu daga þegar veðrið lék við okkur. Ég keypti þessi geggjuðu sílikonform/frostpinnaform í IKEA sem eru tvö saman í pakka sem komu í veg fyrir allan subbuskap sem yngri krúttin mín verða oft fyrir við ísát, halelúja hvað ég dýrka þessi form. 

Berjaís í morgunmat!

4 dl frosin hindber

2 kúfaðar msk kókosmjólk (þykki hlutinn)

1 dl möndlumjólk

klípa af salti 

1 msk agavesíróp eða hlynsíróp

Frábært að bæta við 2 tsk af acaidufti fyrir meiri næringu!

Hrært í matvinnsluvél þangað til silkimjúkt. Passar í 6 ísform.

Bræða 50g af 70% súkkulaði og setja yfir þegar ísinn er orðinn frosinn. Þessi ís er líka góður sem sorbet í sólinni.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *