Hlýleg og góð vetrarsúpa

Ég einfaldlega elska þessa súpu! Hún er allt sem ég vil að súpa sé, ódýr, bragðgóð, einföld, saðsöm og hægt að frysta og eiga fyrir köld vetrarkvöld til að fá hlýju í kroppinn – ásamt því að vera vegan. Ég hef gert þessa fyrir afmæli, sem aðalrétt og sem forrétt og alltaf gleður hún. Kannski er það gyllti liturinn sem minnir á sól eða sand sem veitir manni þessa extra hlýju.

_dsc6721

Hlýleg og góð vetrarsúpa
Matarmikil og dásamleg súpa.
Skrifa umsögn
Prenta
Innihaldsefni
  1. 1 msk matarolía
  2. 1 púrrulaukur, skorin smátt
  3. 2-3 hvítlauksrif
  4. 1 - 1 1/2 tsk grænt karrýmauk
  5. 1/4 tsk cumin
  6. 1 tsk turmarik
  7. 1/2 tsk kóríander krydd
  8. 2 lárviðarlauf
  9. 1 stór kartafla
  10. 1 stór sæt kartafla
  11. 200 gr. rauðar linsubaunir
  12. 1 líter vatn (meira ef hún er of þykk)
  13. 3-4 grænmetisteningar
  14. 1 dós kókosmjólk
  15. salt og pipar
  16. cayennepipar eftir smekk
  17. 3 msk sítrónusafi
  18. Ristaðar kókosflögur
  19. Kóríander , saxað
  20. Lime í sneiðum
Leiðbeiningar
  1. Sjóðið linsurnar samkvæmt leiðbeiningum og setjið til hliðar
  2. Laukurinn settur í pott ásamt olíu og steikt saman við lágan hita
  3. Skrælið kartöflurnar og skerið í bita, bætið þeim saman við laukinn ásamt rest af hráefnum og látið malla þar til kartöflurnar eru orðnar mjúkar
  4. Takið lárviðarlaufin úr súpunni
  5. Þegar kartöflurnar eru orðnar mjúkar er töfrasproti eða kartöflustappari notaður og allt maukað vel niður
  6. Smakkið til og bætið við kryddi ef þið viljið
Athugasemdir
  1. Gott er að hafa auka vatn með grænmetistening tilbúið ef þið viljið hafa súpuna þynnri, eða setja meiri kókosmjólk. Berið fram með ristuðum kókosflögum, kóríander og lime sneiðum.
EatRVK https://eatrvk.is/

 

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *