Tómatsúpa sem framkallar bros hjá öllum

Ég er búin að vera með súpuæði síðustu vikur og hollar, djúsí og ódýrar súpur hafa verið í miklu uppáhaldi. Þessi súpa er í fyrsta sæti sem stendur, börnin mín elska hana, hún er stútfull af hollustu og mjög saðsöm. Svo er auðvitað snilld að taka afganga með sér í vinnuna eða jafnvel gera góða pastasósu. Það sem gerir þessa súpu sérstaklega góða er að grænmetið er ofnbakað áður en það er sett í súpuna og við það verður bragðið af grænmetinu sértaklega gott. Með þessari súpu hef ég brauðið góða sem er hér á síðunni. Þar sem mánudagar er oft kallaðir kjötlausir dagar þá ætla ég að reyna setja inn hollar og góðar grænmetis- og/eða vegan-uppskrifitir á mánudögum næstu vikur, sérstaklega í desember þar sem jólaboð og hlaðborð tröllríða öllu og maginn oft kominn í ólag á sjálfum jólunum.

15151062_10154749706559252_196253588_n

Tómatsúpa
Dásamleg og sérstaklega góð súpa sem getur bæði verið sem forréttur í matarboði eða sem hollur og góður kvöldverður fyrir alla fjölskylduna.
Skrifa umsögn
Prenta
Innihaldsefni
  1. 1 hvítlaukur
  2. 1 búnt basil, um einn bolli
  3. 2 rauðlaukar, skornir í bita
  4. 2 tsk hrásykur
  5. 1 kg tómatar, skornir í báta
  6. 200 ml grænmetissoð
  7. 1/3 bolli kókosmjólk, meira ef þið viljið
  8. 1/2-1 tsk reykt papríkuduft
  9. Klípa af cayennepipar
  10. Ólífuolía
  11. Salt og pipar eftir smekk
Leiðbeiningar
  1. Hitið ofninn í 200 gráður.
  2. Takið hýðið af hvítlauknum, skerið rauðlaukinn í bita, skerið tómata í báta, takið basil laufin frá en saxið basilstilkana og bætið þeim saman við í eldfast mót.
  3. Stráið salti og pipar yfir ásamt hrásykrinum og ólífuolíunni.
  4. Setjið mótið í ofninn og látið malla í um 20-30 mínútur eða þar til tómatar eru orðnir vel mjúkir.
  5. Setjið grænmetið í pott og notið töfrasproti til að mauka vel saman.
  6. Bætið soðinu og papríkuduftinu saman við og látið malla í um 5 mínútur.
  7. Bætið kókosmjólkinni saman við og hrærið vel í.
  8. Bætið við salti og pipar eftir smekk.
  9. Saxið basillaufblöðin og bætið helmingnum saman við og setjið rest í skál til að bera fram með súpunni.
  10. Njótið.
Athugasemdir
  1. Maðurinn minn setur alltaf harðsoðið egg í sínar tómatsúpur sem er dásamlega gott en ekki nauðsyn. Berið fram með kókosmjólk, basil og góðu brauði.
EatRVK https://eatrvk.is/

 

2 Comments on “Tómatsúpa sem framkallar bros hjá öllum

  1. Mikið hljómar þessi vel. Hlakka til að prófa.
    Hvernig grænmetissoð notar þú? Vatn og tening eða?

    • Ég nota hvort sem er, en í þetta sinn notaði ég frá Sollu;)

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *