Svartar saltkaramellu bombur

Undanfarið hef ég verið að deila með lesendum á Mbl.is uppskriftum frá mér. Matur er sérstaklega skemmtilegur vefur fyrir okkur öll sem finnst gaman að lesa um og fræðast um allt sem viðkemur matreiðslu, tækjum, veitingahúsum og margt margt fleira. Mæli með þið fylgist með þessari snilldar síðu! Hér eru dá­sam­legir mol­ar sem ég deildi á síðunni Matur um daginn þeir eru veg­an og inni­halda hin ýmsu steinefni, trefjar og nær­ingu. Inni­halds­efn­in eru fá og upp­skrift­in auðveld. Til­valið gúm­melaði til að eiga í kæli.

Mynd fengin að láni frá Mbl.is, Ljósm. Árni Sæberg

 

Svartar saltkaramellu bombur
Skrifa umsögn
Prenta
Innihaldsefni
  1. 12 fersk­ar döðlur, stein­hreinsaðar
  2. 1/​4 bolli hnet­ur að eig­in vali, ég nota oft­ast pist­así­ur og kasjúhnet­ur
  3. 1/​4 bolli Quin­oa puffs, fæst í Nettó
  4. 1/​4 tsk. gott salt
  5. 1 poki síríus konsúm súkkulaðidrop­ar
Leiðbeiningar
  1. Hnet­urn­ar fara í mat­vinnslu­vél og eru hakkaðar
  2. Setjið döðlur og salt sam­an við hnet­urn­ar og látið bland­ast vel sam­an
  3. Hellið Quin­oa puffs sam­an við deigið og blandið sam­an með sleif
  4. Mótið litl­ar kúl­ur og setjið á smjörpapp­ír og kælið
  5. Bræðið súkkulaðið og dýfið svo kúl­un­um í og setjið aft­ur á smjörpapp­ír­inn og kælið
EatRVK https://eatrvk.is/
Mynd Árni Sæberg

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *