Avókadó kókoskúlur

 Þessar frábæru kókoskúlur eru mjög bragðgóðar og sérstaklega einfaldar að gera. Þær eru í miklu uppáhaldi sem smá orkunammi þegar okkur langar í eitthvað sætt. Best er að geyma þær í ísskáp í lokuðu boxi en ég set alltaf nokkrar í frystinn til að eiga síðar því þær eru fljótar að hverfa. Mitt yngsta barn er ekki eins hrifið af avókadó og mamman en þessar kúlur borðar það með bestu list 😉

 

Avókadó kókoskúlur
Skrifa umsögn
Prenta
Innihaldsefni
  1. 1 avókadó
  2. 10 döðlur
  3. 1/4 bolli gott kakó
  4. 1/2 bolli möndlusmjör
  5. klípa af salti
  6. 1/4 bolli saxað suðusúkkulaði
  7. kókos til að velta upp úr
Leiðbeiningar
  1. Setjið avókadó ásamt döðlum í matvinnsluvél og maukið vel saman
  2. Bætið við kakó, salti og möndlusmjöri og látið blandast vel saman
  3. Hellið súkkulaðinu saman við og blandi með sleif
  4. Veltið upp úr kókos
  5. Kælið og njótið
EatRVK https://eatrvk.is/

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *