Krútt-kökur

Þessar krútt-kökur eru mjög einfaldar og gaman að leika sér með form og skraut. Þær hafa alltaf slegið í gegn í veislum og afmælum. Ég hef gert þessar kökur eins og íspinna fyrir safnanir hjá börnunum mínum og þær seljast alltaf vel. Það koma um 80-90 stykki úr einni uppskrift þegar ég nota smákökuform til að sker út. Hægt er að setja matarlit í sykurpúðablönduna ef þess er óskað. Það er hægt að gera þessar kökur vegan en þá nota ég vegan sykurpúða og smjörlíki. Þær geymast vel kæli.

 

Krútt-kökur
Skrifa umsögn
Prenta
Innihaldsefni
  1. 100 gr smjör
  2. 500 gr sykurpúðar
  3. 300 gr rice krispies
  4. 1 tsk vanilludropar
  5. 300 gr súkkulaði hjúpur eða annað gott súkkulaði
Leiðbeiningar
  1. Bræðið smjörið og sykurpúða í potti við vægan hita og hrærið vel í, gott er að gera þetta í stórum potti.
  2. Þegar blandan er orðin kekkjalaus er potturinn tekinn af og rice krispies blandað saman við
  3. Setjið smjörpappír á borð, hellið blöndunni á pappírinn, setjið aðra örk af smjörpappír yfir og þrýstið blöndunni niður. Gott er að nota kökukefli svo kökurnar verði jafnar.
  4. Notið smákökuform og skerið út kökur og kælið
  5. Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði og dýfið kökunum í, setjið á smjörpappír og kælið.
EatRVK https://eatrvk.is/

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *