Magnaður grillaður maís

Maður getur ekki annað en farið í grillstuð þegar gula vinkonan fer að láta sjá sig. Mér þykir grillaður maís alveg sérstaklega góður og einu sinni fékk ég besta maís í heimi á litlum veitingastað í New York – og það var sósan sem á honum var sem var sérstaklega góð. Í sósunni er ostur sem heitir cotija. Hann er ekki til hér á landi en samkvæmt Internetinu má nota parmesan í staðinn svo ég prufaði að gera þessa sósu og hún heppnaðist svo vel að flestir sem fá að smakka fara heim með uppskriftina. Þessi uppskrift er sérstaklega einföld og bragðgóð.

Magnaður grillaður maís
Skrifa umsögn
Prenta
Innihaldsefni
  1. 4 fersk­ir maís­stöngl­ar í hýðinu
  2. ½ bolli maj­ónes
  3. 1 og ½ bolli sýrður rjómi
  4. ¼ bolli ferskt kórí­and­er
  5. 1 bolli rif­inn par­mes­an
  6. 2 lime (eitt skorið í báta)
  7. ½ tsk. cayenne
  8. 1/​3 tsk pip­ar
  9. Salt á hnífsoddi
Leiðbeiningar
  1. Flettið hýðinu á maísn­um niður. Takið silkiþræðina út og flettið hýðinu aft­ur upp.
  2. Látið stöngl­ana liggja í vatni með tsk. af salti í 20-30 mín­út­ur. Þerrið svo maís­inn og grillið í 15-20 mínútur á hvorri hlið.
  3. Berið maís­inn fram með sós­unni, lime-bát­um og fersku kórí­and­er.
Sós­an
  1. Kreistið saf­ann úr einu lime og hrærið maj­ónes­inu, sýrða rjóm­an­um, par­mesanost­in­um og krydd­inu sam­an við.
  2. Skerið síðan lime-ið í báta og berið fram með maís­in­um.
EatRVK https://eatrvk.is/

Mynd/Mbl

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *