Dýrðlegt svart pasta með risarækjum

Um daginn fékk ég það skemmtilega verkefni að gera uppskrift fyrir matarblað sem síðan Matur gaf út sem er á mbl.is, þar sem þeminn var svartur eða grár matur. Ég vildi strax gera eitt af mínu uppáhalds pasta sem er oft á boðstólum í matarboðum hjá mér. Stundum bæti ég við grænmeti svo sem tómötum, apas eða set hörpuskel eða humar í stað risarækju en grunnurinn er alltaf sá sami. Þetta ljúf­fenga pasta er ákaf­lega gott. Það er alls ekki mikið bragð af blekinu sem litar pastað svart en þó kemur visst bragð sem passar einstaklega vel með öllum skelfisk.

 

Dýrðlegt svart pasta með risarækjum
Skrifa umsögn
Prenta
Innihaldsefni
  1. 400 g svart pasta (fæst m.a. í Hag­kaup)
  2. 2 msk. ólífu­olía
  3. 4 saxaðir hvít­lauks­geir­ar
  4. 500 g ris­arækja
  5. salt og pip­ar eft­ir smekk
  6. 1/​2 tsk. reykt paprika
  7. Börk­ur af einni sítr­ónu, aðeins guli hlut­inn
  8. 1/​4 bolli þurrt sérrí eða græn­met­is­soð fyr­ir þá sem vilja það frek­ar
  9. 3 msk. smjör
  10. Fersk stein­selja eða basilíka
Leiðbeiningar
  1. Sjóðið pastað sam­kvæmt leiðbein­ing­um á pakk­an­um og setjið til hliðar í sigti en geymið ½ dl af pasta­vatn­inu.
  2. Setjið olíu og hvít­lauk á pönnu og mýkið lauk­inn við lág­an hita.
  3. Þurrkið rækj­urn­ar vel og steikið á pönnu þar til þær eru fal­lega bleik­ar og setjið til hliðar.
  4. Hækkið hit­ann og bætið sam­an við sérrí og sítr­ónu­berki á pönn­una og leyfið að malla í nokkr­ar mín­út­ur.
  5. Setjið því næst reykta papriku­duftið ásamt salti og pip­ar á pönn­una.
  6. Bætið smjöri við og leyfið því að bráðna og hrærið vel sam­an með písk.
  7. Bætið pasta­vatn­inu sam­an við.
  8. Setjið pastað sam­an við sós­una á pönn­unni og bætið rækj­un­um við. Setjið á fat og skreytið með stein­selju eða basilíku.
EatRVK https://eatrvk.is/

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *