BBQ-sesam kjúklingur

Þetta er geggjaður kjúk­linga­rétt­ur með aðeins fjór­um hrá­efn­um, ein­fald­ara verður það ekki og hver elsk­ar ekki að elda ein­fald­an en bragðgóðan mat sem hitt­ir beint í mark? Þessi rétt­ur er í upp­á­haldi hjá öll­um í fjöl­skyld­unni sem er al­gjört met því smekk­ur manna er mis­jafn á mínu heim­ili. Það tek­ur einnig eng­an tíma að gera hann svo hann pass­ar fyr­ir heim­ili þar sem mikið er að gera en einnig mat­ar­boð. Það sem er sér­stak­lega þægi­legt er að sós­an sem fylg­ir rétt­in­um er einnig mar­in­er­ing­in. Ég mæli með að þið notið þykkt síróp frekar en þunnt svo kjúllinn verði vel klístraður og djúsí.

mbl.is/Kristinn Magnusson

BBQ-sesamkjúlli
Skrifa umsögn
Prenta
Innihaldsefni
  1. 4-6 kjúk­linga­bring­ur skorn­ar í tvennt eða lund­ir
  2. 1 bolli góð bbq-sósa
  3. ½ bolli hlyns­íróp eða annað gott síróp
  4. ½ bolli ristuð ses­am­fræ
Leiðbeiningar
  1. Hitið ofn­inn í 180 gráður
  2. Ristið ses­am­fræ­in á pönnu og setjið til hliðar
  3. Hellið bbq-sósu og hlyns­írópi í skál og blandið vel sam­an, bætið svo 2 msk. af ses­am­fræj­um sam­an við og hrærið vel sam­an.
  4. Leggið bring­urn­ar í eld­fast mót og hellið um ½ af sós­unni yfir og penslið kjúll­an vel með henni.
  5. Sett í ofn og eldað í 25 mín eða þar til kjúll­inn er til­bú­inn.
Athugasemdir
  1. Þegar kjúll­inn er tibú­inn setjið þið af­gang­inn af ses­am­fræj­un­um og notið af­gang­inn af sós­unni með rétt­in­um, gott er að borða hann með nán­ast öllu meðlæti svo sem hrís­grjón­um, sal­ati, salsa eða kart­öfl­um.
EatRVK https://eatrvk.is/

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *