Heimsins besta Chili con carne

Þessi réttur er mjög vinsæll um allan heim, það eru margar tegundir til af honum og við fjölskyldan erum miklir aðdáendur. Þessi uppskrift hefur verið í sífelldri þróun og nú er ég loksins tilbúin að deila henni með ykkur, enda tel ég hana vera loksins fullkomna. Þessi matur er sannkallaður "Comfort food" eða eins og við köllum á mínu heimili "huggómat". Rétturinn passar bæði sem hversdagsmatur eða í gott matarboð með heimagerðu guacamole, sýrðum rjóma, tortilla flögum og osti. Huggulegra verður þetta ekki. Það sem er best við þessa uppskrift að allir fimm í minni fjölskyldu elska hana og í sannleika sagt er það ekki algengt að allir séu sáttir enda margir bragðlaukar sem þarf að gleðja.
Úr eldhúsinu
Heimsins besta Chili con carne
Skjárinn slekkur á sér eins og venjulega.
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Til að bera fram
Aðferð
- Steikið laukinn í olíu við vægan hita eða þar til hann er orðinn mjúkur, bætið saman við hvítlauk, chili og látið malla í 3-5 mínútur.
- Bætið hakki saman við og steikið þar til kjötið er orðið fallega brúnt.
- Bætið kummin og papriku kryddi saman við og steikið í 1-2 mínútu.
- Bætið tómötum, tómatmauki, rauðvíni/bjór, vatni og nautateningi saman við og hrærið vel saman.
- Látið svo malla með lokið á við vægan hita í 40 - 50 mínútur.
- Bætið svo í lok suðutímans baunum og súkkulaði og látið hitna í gegn eða þar til súkkulaði er bráðnað, eða um 5-10 mínútur.
- Saltið og piprið eftir smekk.
EatRVK · https://eatrvk.is/2018/08/heimsins-besta-chili-con-carne/




Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.