Túnfisksalat með epli og chili

Hver elskar ekki gott túnfisksalat? Mér finnst dásamlegt um helgar að fá nýbakað brauð eða heimagert hrökkbrauð og salat til að njóta með fjölskyldunni, ég set hér krækjur á einfaldar og góðar uppskriftir fyrir ykkur sem ég nota oft. Þessi salatuppskrift varð til eftir að vinkona mín kom í heimsókn með góðgæti og þar á meðal var túnfisksalat með eplum sem sló heldur betur í gegn. Ekki veit ég af hverju eplin eru svona fullkomin með túnfiski en þetta er snilldar samsetning. Auðvitað vildi ég svo fara bæta við smá chili enda svo gott að setja það í flest allan mat. Þessi uppskrift er stór enda er ég með þrjá drengi sem skófla þessu í sig. Auðvelt er þó að helminga uppskriftina og fyrir þá sem vilja ekki sterkt er um að gera hafa minna af shiraz sósunni.
Úr eldhúsinu
Túnfisksalat með eplum og chili
Skjárinn slekkur á sér eins og venjulega.
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Aðferð
- Allt sett saman í skál og blandað vel saman, njótið svo með nýbökuðu brauði, hrökkbrauði eða öðru kexi.
EatRVK · https://eatrvk.is/2019/05/tunfisksalat-med-epli-og-chili/



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.