Besta bananabrauðið - Minni sóun

Þetta bananabrauð er sætt, mjúkt og saðsamt. Ekki skemmir fyrir hversu fljótlegt það er. Ég baka það gjarnan þegar ég á brúna og slappa banana sem ég vil nýta en ég hef verið að reyna að stuðla að minni matarsóun á heimilinu með því að versla úr Minni Sóun körfunni í Nettó, auk þess að nýta allt til hins ítrasta sem til er í eldhúsinu heima. Ég keypti nú síðast 2 kg af banönum á 287 krónur. Þeir voru brúnir og ljótir að sjá en dísætir og dásamlegir á bragðið. Þessa ljótu en ljúfu banana notaði ég í tvö stykki af brauði og restina frysti ég til að nota í Nicecream. Vel þroskaðir frystir bananar eru mikið lostæti í hina ýmsu drykki en þá má einnig affrysta í brauðið góða.


Uppskriftin
Besta bananabrauðið
Einfalt, hollt og gott!
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Aðferð
- Blandið öllum þurrefnunum saman í skál.
- Stappið bananana vel og hrærið út í með gaffli ásamt egginu, olíunni og döðlunum.
- Hrærið vel saman með gafflinum til að brauðið fái létta áferð.
- Smyrjið jólakökuform vel að innan með kókosolíu.
- Bakið í miðjum ofninum í 30 mínútur á 180°C.
EatRVK · https://eatrvk.is/2016/03/besta-bananabraudid-minni-soun/



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Hæ hvað er bolli í dl/ml ? kveðja
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.