Eggaldinbitar með parmesanhjúp

Þetta er dásamlegur forréttur sem mun engan svíkja. Þessir bitar eru allt sem maður vill, stökkir, mjúkir, bragðgóðir og djúsí. Ég mæli með að gera smá auka til að eiga í nesti með góðu salati í vinnuna daginn eftir. Það sem gerir þessa bita enn betri fyrir mig er að elsti drengurinn minn sem vill helst ekkert grænmeti (ólíkt bræðrum sínum) borðar þessa bita með bestu lyst.


Uppskriftin
Eggaldinbitar með parmesanhjúp
Dásamlegir bitar sem kæta alla.
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Eggaldinbitar
Tómat- og basilsósa
Aðferð
Bitarnir
- Afhýðið eggaldin og skerið í bita sem eru um 1-2 cm að þykkt.
- Setjið eggaldin til hliðar í sigti með skál undir og setjið tvær teskeiðar af salti yfir og veltið þeim upp úr því, þetta dregur safann úr bitunum og þeir verða ljúffengir. Látið standa í 30 mínútur.
- Setjið brauðmylsnu, parmesan, salt og pipar í stóra skál, hveiti í aðra skál og hrærið eggin saman í þriðju skálina.
- Hellið olíu í pott eða djúpa pönnu. Til að athuga stöðuna á olíunni setjið þið skaft af trésleif í hana. Ef hún er tilbúin myndast litlar loftbólur í kringum skaftið.
- Setjið eggaldinbitana fyrst í hveiti, svo egg og að lokum brauðmylsnuna og djúpsteikið þar til fallega gylltir. Flytjið bitana á pappír af elhúsrúllu meðan þið klárið að djúpsteikja. Ef bitarnir eru að verða dökkbrúnir á að lækka hitann undir olíunni.
- Rífið parmesan yfir bitana og skreytið með basil.
Sósan
- Allt sett saman í pott og látið malla við vægan hita; sósan verður betri ef hún fær að malla í lengri tíma.
EatRVK · https://eatrvk.is/2016/11/eggaldinbitar-med-parmesanhjup/



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.