Epla- og kanil múslí

Fullkomið trít! Hvort sem er í kökubotna, út á grauta eða jógúrt nú eða til að borða eitt og sér þar sem múslíð er nokkuð "chunky" eða hnullungað.

Uppskriftin
Epla- og kanilmúslí
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Aðferð
- Stappið banana vel og hrærið bræddri kókosolíu, kanil og vanillu saman við. Setjið blönduna til hliðar.
- Blandið öllum hinum innihaldsefnunum saman í skál.
- Hellið bananablöndunni saman við og blandið vel saman með höndunum. Blandan á að loða létt saman. Ef hún loðir nánast ekkert saman þarf aðeins meiri banana og olíublöndu.
- Dreifið blöndunni yfir bökunarpappír á bökunarplötu. Passið að rúsínur eða þurrkaðir ávextir standi ekki upp úr heldur séu þakin blöndunni, annars brenna þau.
- Bakið neðarlega í ofninum á 180 gráðum í 25 mínútur eða þar til blandan verður gyllt og stökk (verður enn stökkari við að kólna). Gott er að hræra 2-3 sinnum í blöndunni yfir bökunartímann.
- Kælið og geymið í loftþéttum umbúðum.
EatRVK · https://eatrvk.is/2016/07/epla-og-kanil-musli/



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.