Grillmarinering sem passar á allt

Fara í uppskrift
Grillmarinering sem passar á allt

Loksins loksins hef ég tíma til að deila með ykkur uppskriftum. Ég mun vera dugleg að setja inn eitthvað nýtt hér á síðunni og vil ég byrja á þessari dásamlegu og ávanabindandi marineringu sem passar með öllu. Við erum búin að marinera allt hér á heimilinu upp úr þessu og alltaf verið sátt; grænmeti, fisk, nautakjöt, svínakjöt, tófú og kjúkling. Allt kom vel út og var sértaklega bragðgott og djúsí. Auðvelt er að leika sér með hve sterk hún er á bragðið og mæli ég með fyrir þá sem ekki eru hrifnir af sterkum mat að sleppa eða hafa lítið af chili. Þetta er uppskrift sem á rætur sínar að rekja til Kóreu og eru margar útgáfur til, hún kallast á frummálinu Bulgogi og ég lofa að hún mun ekki svíkja. Þetta er mín blanda sem hefur þróast í eldhúsinu en endilega leikið ykkur með hráefnin sem eru dásamlega góð. Þessa marineringu nota ég líka sem sósu og geri þá extra mikið og læt sjóða smá stund í potti.

Uppskriftin

Grillmarinering sem passar á allt

Besta marinering í heimi. Gott er að sjóða svo marineringuna í potti og nota sem sósu.

Hráefni

Merktu við það sem er komið.

Aðferð

  1. Blandið saman peru, hvítlauk, sojasósu, chili, engifer, sykri, sesamolíu í stóran plastpoka sem hægt er að loka eða í skál.
  2. Skerið hráefnið sem á nota í þunnar sneiðar, svona um 1/2 - 1 cm að þykkt og setjið í pokann/skálina.
  3. Blandið öllu vel saman og látið marinerast á borði í 30 mínútur eða í ísskáp í allt að 8 klukkustundum.

Við eldhúsborðið

Athugasemdir

Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.

Skildu eftir athugasemd

Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.