Hægelduð papriku- og tómatsúpa

Þessi súpa er án allra aukaefna og hentar fræbærlega í hreinsun (detox), handa litlum krílum eða til að frysta og kippa með í vinnuna. Svo er um að gera að nota það grænmeti sem er til í ísskápnum.

Uppskriftin
Hægelduð papriku- og tómatsúpa
- Skammtar
- 2
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Aðferð
- Grænmetið er skolað og skorið gróft og sett í eldfast mót og eldað við vægan hita lengi.
- Ég set það oft á háan hita (250 gráður) í 20 mín og slekk svo á ofninum yfir nótt. Annars við 200 gráður í um klst. eða þar til grænmetið verður brúnleit og lungnamjúkt. Þá er það tekið út og látið kólna.
- Því næst er það maukað með töfrasprota eða blandara ásamt 6 dl af soðnu vatni, basilíkunni, kryddinu og möndlumjólkinni.
- Ef þú vilt þynna súpuna setur þú meira vatn.
- Súpan er borðuð heit og toppuð með einni msk af pestódressingu, 1 tsk af graskersfræjum og vænni sneið af lárperu.
EatRVK · https://eatrvk.is/2016/01/haegeldud-papriku-og-tomatsupa/



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.