Heimsins besti hummus

Fara í uppskrift
Heimsins besti hummus

Þennan hummus fékk ég hjá systur minni ekki fyrir löngu en hún er snillingur í eldhúsinu. Dóttir hennar og tengdasonur eru bæði vegan og því hefur eldamennska hennar breyst mikið síðustu mánuði og nú eldar hún hvern dásemdar grænmetisréttinn á fætur öðrum. Ég ætla að leyfa ykkur njóta þess á næstu mánuðum og deila með ykkur uppáhalds vegan uppskriftunum frá henni. Þegar ég fékk þennan hummus hjá henni þá hætti ég ekki að brosa, hann er dásamlegur! Skrítið hvað góður matur getur glatt hjartað! Enginn verður svikinn af því að gera þennan hummus og svo er hann líka svo fljótgerður. Ég ber hann fram með góðu brauði og að mínu mati er súrdeigsbrauðið frá The Coocoo's Nest það besta í bænum og passar fullkomnlega með þessum dýrðar hummus. Hann er einnig stórkostlegur á vefjur. Það má líka sleppa kjúklingabaununum og setja meiri olíu og þá ertu komin með snilldar sósu með salati eða til að marinera kjúkling upp úr.

[caption id="" align="alignnone" width="1100"]

_DSC4140

Mynd: Íris Ann[/caption]

[caption id="attachment_2351" align="aligncenter" width="1100"]

Mynd: Íris Ann[/caption]

[caption id="attachment_2374" align="alignnone" width="1100"]

Mynd: Íris Ann[/caption]

Uppskriftin

Heimsins besti hummus

Bragðmikill hummus með austurlensku ívafi.

Hráefni

Merktu við það sem er komið.

Aðferð

  1. Setjið kjúklingabaunir, hnetusmjör, Sriracha sósuna, engifer, hvítlaukinn, hunangið (eða maple-sýrópið/agave), salt og pipar í matvinnsluvél og blandið vel saman.
  2. Með vélina í gangi hellið ólífuolíunni ásamt klakavatninu í, þetta hjálpar blöndunni að verða dásamlega mjúk og góð.
  3. Setjið blönduna í skál og kreistið lime safa yfir og blandið svo saman við hana hnetunum, kóríanderinu og vorlauknum með sleif.

Við eldhúsborðið

Athugasemdir

Berglind Guðmundsdóttir

Æðisleg uppskrift. Þessi er orðin ein af uppáhalds.

Eatrvk

Frábært að heyra Berglind ;)

Skildu eftir athugasemd

Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.