Hlýleg og góð vetrarsúpa

Ég einfaldlega elska þessa súpu! Hún er allt sem ég vil að súpa sé, ódýr, bragðgóð, einföld, saðsöm og hægt að frysta og eiga fyrir köld vetrarkvöld til að fá hlýju í kroppinn - ásamt því að vera vegan. Ég hef gert þessa fyrir afmæli, sem aðalrétt og sem forrétt og alltaf gleður hún. Kannski er það gyllti liturinn sem minnir á sól eða sand sem veitir manni þessa extra hlýju.

Uppskriftin
Hlýleg og góð vetrarsúpa
Matarmikil og dásamleg súpa.
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Aðferð
- Sjóðið linsurnar samkvæmt leiðbeiningum og setjið til hliðar
- Laukurinn settur í pott ásamt olíu og steikt saman við lágan hita
- Skrælið kartöflurnar og skerið í bita, bætið þeim saman við laukinn ásamt rest af hráefnum og látið malla þar til kartöflurnar eru orðnar mjúkar
- Takið lárviðarlaufin úr súpunni
- Þegar kartöflurnar eru orðnar mjúkar er töfrasproti eða kartöflustappari notaður og allt maukað vel niður
- Smakkið til og bætið við kryddi ef þið viljið
EatRVK · https://eatrvk.is/2016/11/hlyleg-og-god-vetrarsupa/



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.