Kjötzza - brauðlaus pizza

Fara í uppskrift
Kjötzza - brauðlaus pizza
20160417_184649-1

Ég elska ítalskan mat en eins og margir mætti ég alveg minnka við mig kolvetnin. Því fékk ég fiðring í magann þegar ég rakst á uppskrift frá þokkagyðjunni Nigellu af brauðlausri pizzu sem hún kallar kjötzzu. Ég breytti uppskriftinni örlítið eftir eigin smekk og útkoman var æðisleg! Meira að segja dóttir mín borðaði vel af matnum án þess að ákalla skyr í öðrum hverjum bita.

Uppskriftin

Kjötzza með ferskum mozzarella

Frábær matur fyrir 4-6. Gott er að hafa ferskan parmesan á kantinum, hvítlauksolíu og salat.

Hráefni

Merktu við það sem er komið.

Aðferð

  1. Blandið með höndunum saman í skál hakki, parmesanosti, brauðmylsnu eða höfrum, basiliku og eggjum.
  2. Rífið út í eða fínsaxið hvítlauk og saltið og piprið.
  3. Blandið saman en varist að ofhræra svo kjötið fái ekki þunga og klessta áferð.
  4. Smyrjið grunnt kringlótt bökunarform, um 28 sm í þvermál, og skellið kjötinu í það.
  5. Þrýstið blöndunni létt niður með fingrunum svo hún þeki botninn eins og pítsubotn.
  6. Gætið þess að hella eins miklu af vökvanum og hægt er úr dósinni með niðurskornu tómötunum, blandið svo pizzakryddi, salti og pipar saman við þá og smyrjið maukinu létt yfir kjötgrunninn.
  7. Dreifið rifnum osti yfir, raðið mozzarellasneiðum ofan á og setjið í 220°C heitan ofn í 20-25 mínútur en þá ætti kjötið að verða gegnsteikt og stíft og mozzarellaosturinn bráðnaður. Það er líka gott að setja 2 msk af furuhnetum ofan á áður en hún er bökuð.
  8. Takið kjötzzuna úr ofninum og látið hana bíða í 5 mínútur.
  9. Skreytið með basilíkulaufum og ferskum tómötum.

Við eldhúsborðið

Athugasemdir

Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.

Skildu eftir athugasemd

Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.