Kjúklingasnitsel með dýrðlegri reyktri bbq-sósu

Þessi réttur er í miklu uppáhaldi hjá öllum í fjölskyldunni. Hann er einfaldur og tekur ekki mikinn tíma að gera. Gott er að nota afganga í salat daginn eftir ef einhverjir verða. Stjarnan í þessari uppskrift er bbq-tómatsósa sem við erum að smyrja á allt hér á mínu heimili. Sósan er frá Mr. Organic og ég er ekki að grínast þegar ég segi að við höfum keypt okkur um 7 flöskur núna í sumar af þessari dýrðlegu sósu, hún er svo fullkomin með öllu grilluðu, pasta, á pylsur, hamborgara og svo framvegis.
[caption id="attachment_2940" align="aligncenter" width="820"]

Mynd mbl.is/Hanna Andrésdóttir[/caption]
Uppskriftin
Kjúklingasnitsel með djúsí bbq-sósu
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Aðferð
- Hitið ofninn á 180 gráður
- Malið sesamfræin og blandið þeim saman við brauðraspinn og setjið á djúpan disk eða fat.
- Skerið bringurnar langsum svo þið fáið tvö stór stykki úr hverri bringu. Gott er að berja þau aðeins með kjöthamri.
- Saltið og piprið hveitið og setjið á djúpan disk.
- Pískið eggið í skál og setjið til hliðar.
- Veltið fyrst kjúllanum upp úr hveitinu og setjið það svo í eggið og að lokum í raspinn.
- Þegar allar bringurnar eru tilbúnar eru þær steiktar í olíu í djúpri pönnu. Olían þarf að vera um 1 cm að dýpt. Leggið svo kjúllann fyrst á eldhúsrúllupappír og svo á smjörpappír og bakið í gegn í ofninum í 10-15 mínútur. Á meðan kjúllinn er í ofninum er sósan gerð. Auðvitað má steikja hann alveg í olíunni en mér þykir gott að geta sett hann í ofninn, svo ekki er eins mikil bræla og ég get gert allt annað sem fara á með réttinum tilbúið á meðan hann mallar í ofninum.
- Sósa
- Öllu blandað í skál og blandað vel saman, geymist í kæli.
EatRVK · https://eatrvk.is/2017/08/kjuklingasnitsel-med-dyrdlegri-reyktri-bbq-sosu/



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.