Krydduð bláberjasulta

Fara í uppskrift
Krydduð bláberjasulta
_DSC4259

Þetta er langbesta bláberjasultan að mínu mati, hún er hreinlega dýrðleg með öllu! Hún er til dæmis snilld með paté, á vöfflurnar, kjötið og pönnukökurnar. Ilmurinn í eldhúsinu þegar hún er að mallast í pottinum er hreinn unaður og það er ekki síðra að borða hana.

Uppskriftin

Krydduð bláberjasulta

Dásamleg bláberjasulta sem kryddar lífið.

Hráefni

Merktu við það sem er komið.

Aðferð

  1. Setjið bláber og sítrónusafa í pott og látið sjóða í 5 mínútur.
  2. Takið pottinn af hellunni á meðan sykrinum og kryddi er blandað saman við.
  3. Setjið pottinn aftur á helluna og látið malla þar til sykurinn er alveg uppleystur.
  4. Blandið saman sultuhleypi og sykri og stráið yfir blönduna og látið malla aðeins lengur eða þar til allt hefur blandast vel saman.
  5. Hellið í tandurhreinar krukkur og lokið strax

Við eldhúsborðið

Athugasemdir

Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.

Skildu eftir athugasemd

Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.