Magnaður grillaður maís

Fara í uppskrift
Magnaður grillaður maís

Maður getur ekki annað en farið í grillstuð þegar gula vinkonan fer að láta sjá sig. Mér þykir grillaður maís alveg sérstaklega góður og einu sinni fékk ég besta maís í heimi á litlum veitingastað í New York - og það var sósan sem á honum var sem var sérstaklega góð. Í sósunni er ostur sem heitir cotija. Hann er ekki til hér á landi en samkvæmt Internetinu má nota parmesan í staðinn svo ég prufaði að gera þessa sósu og hún heppnaðist svo vel að flestir sem fá að smakka fara heim með uppskriftina. Þessi uppskrift er sérstaklega einföld og bragðgóð.

[caption id="attachment_2856" align="aligncenter" width="548"]

Mynd/Mbl[/caption]

Uppskriftin

Magnaður grillaður maís

Hráefni

Merktu við það sem er komið.

Aðferð

  1. Flettið hýðinu á maísn­um niður. Takið silkiþræðina út og flettið hýðinu aft­ur upp.
  2. Látið stöngl­ana liggja í vatni með tsk. af salti í 20-30 mín­út­ur. Þerrið svo maís­inn og grillið í 15-20 mínútur á hvorri hlið.
  3. Berið maís­inn fram með sós­unni, lime-bát­um og fersku kórí­and­er.

Sós­an

  1. Kreistið saf­ann úr einu lime og hrærið maj­ónes­inu, sýrða rjóm­an­um, par­mesanost­in­um og krydd­inu sam­an við.
  2. Skerið síðan lime-ið í báta og berið fram með maís­in­um.

Við eldhúsborðið

Athugasemdir

Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.

Skildu eftir athugasemd

Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.