Mexíkóskir kjúklinganaggar með hunangs-sinnepssósu

Drengirnir mínir eru mikið fyrir kjúkling og það er alltaf gaman að gera nýja kjúklingarétti fyrir þá. Um daginn voru lundir á tilboði í Nettó svo ég keypti helling í frystinn og því eru þær oft í matinn þessa dagana. Þessi réttur varð til því tveir elstu drengirnir elska nagga en eru svo óheppnir að mamman vill aldrei kaupa þá. Því gerðum við okkar eigin og drengirnir hafa ekki beðið um tilbúna nagga eftir það. Gott er að gera stóran skammt af þessum gullnu bitum og nota í salat næsta kvöld eða sem nesti í vinnuna.

Uppskriftin
Mexíkóskir kjúklinganaggar með hunangs-sinnepssósu
Dásamlegir naggar sem allir í fjölskyldunni borða.
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Naggar
Sósa
Aðferð
Naggar
- Hitið ofninn í 180 gráður.
- Setjið hveiti í skál og kryddið með salti og pipar.
- Þeytið eggin vel saman í annari skál.
- Setjið flögurnar í matvinnsluvél og setjið þær svo í þriðju skálina.
- Veltið lundunum fyrst upp úr hveitinu, svo egginu og að lokum Doritos mylsnunni og setjið á smjörpappír.
- Þegar allar lundirnar eru tilbúnar eru þær bakaðar í ofni við 180 gráður í 25-30 mínútur eða þar til þær eru eldaðar í gegn.
Sósa
- Öll hráefni sett saman í skál og þeim blandað vel saman.
EatRVK · https://eatrvk.is/2016/10/mexikoskir-kjuklinganaggar-med-hunangs-sinnepssosu/



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.