Parmesan-bollurnar sem aldrei klikka

Fara í uppskrift
Parmesan-bollurnar sem aldrei klikka

Það eiga all­ir nokkr­ar upp­skrift­ir sem þeir elska og gera aft­ur og aft­ur. Þessi upp­skrift er mín upp­á­halds og er gerð oft á mínu heim­ili, jafn­vel nokkr­um sinn­um í mánuði og stund­um tvö­falda ég upp­skrift­ina og geri auka­skammt til að frysta. Í þess­ari upp­skrift er svína­hakk og verð ég að viður­kenna að í byrj­un keypti ég það bara til að spara þar sem það var á afslætti, en varð svo því­líkt ánægð með hvernig þær komu út og fannst þær eig­in­lega betri en með öðru hakki. Það sem ég elska við þessa upp­skrift er að hún geng­ur bæði sem hvers­dags­mat­ur en einnig í mat­ar­boð, ung­ir sem aldn­ir hrein­lega elska þessa upp­skrift. Þessa uppskrift gaf ég matarsíðunni frábæru Matur á Mbl fyrir nokkru og vil nú deila henni með ykkur, verði ykkur að góðu ;)

[caption id="attachment_2960" align="aligncenter" width="640"]

mbl.is/​Hanna Andrés­dótt­ir[/caption]

Uppskriftin

Parmesan-bollur

Dýrðlegar kjötbollur sem eru alltaf ein af uppáhalds uppskriftunum mínum ásamt fljótlegri sósu.

Hráefni

Merktu við það sem er komið.

Sósa

Aðferð

  1. Allt hrært sam­an og mótað í boll­ur og setjið á smjörpapp­ír
  2. Boll­urn­ar eru svo snævi þakt­ar par­mes­an-osti (hér á ekki að spara ost­inn) og bakaðar við 200 gráður í 30 mín. eða þar til boll­urn­ar eru orðnar fal­lega gyllt­ar.
  3. Það er fátt betra en að skafa svo bráðinn par­mesanost­inn af bök­un­ar­papp­írn­um og borða með boll­un­um.
  4. Á meðan bollurnar eru í ofninum er gott að gera sósuna og sjóða pastað samkvæmt leiðbeiningum

Sósa

  1. Fyr­ir þá sem vilja smá hita er gott að setja chili-flögur, ég set um 1/2 tsk.
  2. Setjið allt í pott og látið malla við væg­an hita á meðan boll­urn­ar eru í ofn­in­um.

Við eldhúsborðið

Athugasemdir

Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.

Skildu eftir athugasemd

Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.