Pestóbringur með fetaosti og furuhnetum

Þessi kjúklingaréttur er alltaf í miklu uppáhaldi hér á mínu heimili. Hann er bragðgóður og kjúklingurinn verður sérstaklega mjúkur. Það sem er best við þennan rétt er að ég geri alltaf stóra uppskrift af honum og nota svo afgang í pasta daginn eftir, hann er því sniðugur fyrir stór heimili og líka bankabókina.
Uppskriftin
Pestó kjúklingabringur með fetaosti og furuhnetum - einfaldara verður þetta ekki!!!
Dúnmjúkur og bragðgóður kjúklingaréttur sem öll fjölskyldan elskar
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Aðferð
- Hitið ofninn í 180 gráður
- Skerið bringurnar í lengjur eða um 1-2 sentimetra að breidd
- setjið bringurnar í eldfast mót og hellið pestó yfir
- Takið helminginn af olíunni af fetaostinum og dreyfið rest yfir bringurnar
- Blandið vel saman og setjið inn í ofn og bakið í 30-35 mínútur eða þar til bringurnar eru eldaðar í gegn
- Dreifið furuhnetum yfir þegar rétturinn er tekinn úr ofninum og berið fram með parmesan osti.
EatRVK · https://eatrvk.is/2016/06/pesto-kjuklingabringur-med-fetaosti-og-furuhnetum-einfaldara-verdur-thetta-ekki/



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.