Tómatsúpa sem framkallar bros hjá öllum

Ég er búin að vera með súpuæði síðustu vikur og hollar, djúsí og ódýrar súpur hafa verið í miklu uppáhaldi. Þessi súpa er í fyrsta sæti sem stendur, börnin mín elska hana, hún er stútfull af hollustu og mjög saðsöm. Svo er auðvitað snilld að taka afganga með sér í vinnuna eða jafnvel gera góða pastasósu. Það sem gerir þessa súpu sérstaklega góða er að grænmetið er ofnbakað áður en það er sett í súpuna og við það verður bragðið af grænmetinu sértaklega gott. Með þessari súpu hef ég brauðið góða sem er hér á síðunni. Þar sem mánudagar er oft kallaðir kjötlausir dagar þá ætla ég að reyna setja inn hollar og góðar grænmetis- og/eða vegan-uppskrifitir á mánudögum næstu vikur, sérstaklega í desember þar sem jólaboð og hlaðborð tröllríða öllu og maginn oft kominn í ólag á sjálfum jólunum.

Uppskriftin
Tómatsúpa
Dásamleg og sérstaklega góð súpa sem getur bæði verið sem forréttur í matarboði eða sem hollur og góður kvöldverður fyrir alla fjölskylduna.
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Aðferð
- Hitið ofninn í 200 gráður.
- Takið hýðið af hvítlauknum, skerið rauðlaukinn í bita, skerið tómata í báta, takið basil laufin frá en saxið basilstilkana og bætið þeim saman við í eldfast mót.
- Stráið salti og pipar yfir ásamt hrásykrinum og ólífuolíunni.
- Setjið mótið í ofninn og látið malla í um 20-30 mínútur eða þar til tómatar eru orðnir vel mjúkir.
- Setjið grænmetið í pott og notið töfrasproti til að mauka vel saman.
- Bætið soðinu og papríkuduftinu saman við og látið malla í um 5 mínútur.
- Bætið kókosmjólkinni saman við og hrærið vel í.
- Bætið við salti og pipar eftir smekk.
- Saxið basillaufblöðin og bætið helmingnum saman við og setjið rest í skál til að bera fram með súpunni.
- Njótið.
EatRVK · https://eatrvk.is/2016/11/tomatsupa-sem-framkallar-bros-hja-ollum/



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Mikið hljómar þessi vel. Hlakka til að prófa. Hvernig grænmetissoð notar þú? Vatn og tening eða?
Ég nota hvort sem er, en í þetta sinn notaði ég frá Sollu;)
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.