Tryllt sykurlaust Nutella!

Það elska allir Nutella. Verst hvað það er stútfullt af sykri. Þetta dásamlega súkkulaðismjör er vissulega hitaeiningaríkt en inniheldur engan viðbættan sykur og fullt af hollri fitu, steinefnum, vítamínum og andoxunarefnum. Döðlurnar eru einnig trefjaríkar og góðar fyrir meltinguna. Ég get með sanni sagt að ég hef ekki enn fundið manneskju sem elskar ekki þetta súkkulaðismjör. Það er dásamlegt sem krem, í eftirrétti eða til að dýfa jarðaberjum ofan í. Nú eða bara skeið! Ekki er verra að það inniheldur aðeins fimm hráefni! En ég vara ykkur við: Þetta er sem áður segir hitaeiningaríkt. Ef þú rankar við þér um miðja nótt inni í ísskáp með skeið, þá skaltu taka góðan göngutúr daginn eftir! Og skilja krukkuna eftir heima.


Þessi færsla er styrkt af Innnes sem flytur inn Rapunzel. EatRVK vinnur aðeins í samstarfi við vörumerki sem vefurinn og eigendur hans mæla fyllilega með og nota sjálfar.
Uppskriftin
Sykurlaust Nutella
Tryllt Nutella án viðbætts sykurs.
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Aðferð
- Setjið öll hráefnin saman í matvinnsluvél og malið uns silkimjúkt.
- Geymið í krukku inni í ísskáp.
EatRVK · https://eatrvk.is/2016/08/tryllt-sykurlaust-nutella/



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.