Trylltur lax

Ég er svo heppin að eiga nokkra veiðimenn í fjölskyldunni sem færa mér góðgæti og þá er gaman að prufa sig áfram með uppskriftir. Lax er ofurfæða sem er holl og góð. Þessi uppskrift er í miklu uppáhaldi og slær alltaf í gegn, einnig hjá þeim sem hafa ekki verið hrifnir af lax áður. Það er eitthvað við samsetninguna sem fær bragðlaukana til að dansa af gleði. Það má alveg nota annan fisk fyrir þessa marineringu ef erfitt er að fá góðan lax. Gott er að sjóða marineringuna niður og gera úr henni sósu, hvort sem er soðsósu eða skella smá rjóma saman við.

Uppskriftin
Trylltur lax
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Aðferð
- Setjið fyrstu átta hráefnin hér fyrir ofan í skál og blandið vel saman, setjið svo fiskinn í fat og hellið leginum yfir, setjið plastfilmu og leyfið fiskinum að marinerast í um 1 1/2 - 2 tíma í ísskáp.
- Takið laxinn úr marineringunni og setjið í álbakka sem búið er að pensla með smá olíu og grillið, eða steikið á pönnu með skinnið niður. Passið að elda ekki fiskinn of lengi, við eldum hann í 10 - 15 mínútur samtals.
- Takið marineringuna og setjið í pott, sjóðið hana aðeins niður og berið fram með fiskinum
- Skreytið fiskinn svo með sesamfræjum, vorlauk og rest af kóríander
EatRVK · https://eatrvk.is/2018/09/trylltur-lax/



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.