Quesadillas með túnfisk, kóríander, maís og láperu

Ég les matreiðslubækur eins og spennusögur. Jii, hvaða krydd skyldi koma í þetta partý? Hvað er í sósunni?? Er ekkert kóríander?! Hringið í nágrannann, það er ekki til hveiti! En án gríns þá á ég erfitt með að fara eftir uppskriftum frá öðrum og sæki mér gjarnan innblástur frekar en ítarlegar uppskriftir og tilmæli. Ég rakst á uppskrift af túnfisktortillum um daginn og gat ekki á mér setið að henda í eina tilraun. Útkoman var dásamleg! Eiginlega bara fullkomin! Mexíkóskur matur er í sérlegu uppáhaldi hjá mér og þessi uppskrift er komin í topp 10.

Uppskriftin
Quesadillas með túnfisk, kóríander, maís og láperu
Bragðmikill og djúsí partíréttur eða fullkominn kvöldmatur með salati, salsasósu og sýrðum rjóma. Börnin elska þennan rétt.
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Aðferð
- Hellið vökvanum af túnfisknum og setjið hann í skál ásamt jógúrtinu, sýrða rjómanum, límónusafanum og kryddinu.
- Hellið vatninu af maíisnum eða setjið hann stutt í sjóðandi vatn ef hann er frosinn.
- Kjarnhreinsið og saxið paprikuna.
- Saxið laukinn og kóríanderið.
- Setjið maísinn, paprikuna, kóríanderið og laukinn út í túnfiskblönduna.
- Bætið ostinum út í skálina og hrærið vel.
- Setjið 1/2 msk af olíu á pönnu og kveikið undir (miðlungs hiti).
- Setjið 1 tortillaköku á pönnuna og setjið vel af salatinu ofan á og lokið með annarri köku.
- Steikið í 2 mín á hvorri hlið uns kökurnar eru gylltar, osturinn bráðinn og salatið gegnheitt.
- Skerið með pizzaskera og berið fram með salati, láperu, fersku kóríander, salsa og sýrðum rjóma.
EatRVK · https://eatrvk.is/2016/02/tunfiskquasadillas-med-koriander-mais-og-laperu/



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.