Jarðarberjafylltar múffur

Það er alltaf gaman að baka nýjar og öðruvísi múffur. Ég mæli með að prufa sig áfram með sultur í þessari uppskrift. Mér finnst berjasultur bestar og í þetta sinn notaði ég jarðarberja- og rabarbarasultu sem ég gerði um daginn.

Jarðarberjafylltar múffur

Deigið dugir í 12 múffur

  • 150 g sykur
  • 200 g hveiti
  • 1 tsk lyftiduft
  • 150 ml grísk jógúrt eða AB mjólk
  • 2 stór egg eða 3 venjuleg
  • 1 tsk vanilla extract
  • 150 g smjör
  • 12 tsk sulta
  • 3 msk flórsykur til að dusta yfir
  1. Blandið saman öllum þurrefnum í skál.
  2. Bræðið smjörið og setjið til hliðar.
  3. Setjið jógúrt, egg og vanillu í aðra skál og blandið vel saman með pískara.
  4. Blandið blautefnunum saman við þurrefnin, bætið því næst smjörinu við og blandið vel saman.
  5. Penslið múffuformin og setjið eina kúfaða matskeið í hvert form.
  6. Setjið eina tsk af sultu ofan á og svo restina af deginu yfir hverja múffu.
  7. Bakið í 180 gráðu heitum ofni í um 20 mínútur.
  8. Látnar kólna og sigtið flórsykri yfir.

 

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *