Hin eina sanna salsasósa

Ég elska mexíkóskan mat og er eiginlega á því að allt með salsasósu sé gott. Þessi uppskrift er frá Lucas Keller en þessa sósu geri ég reglulega og á oftast inni í ísskáp. Dásamlegt með kjúklingasalati, eggjaköku, taco eða quesadillas, nú eða sem sósa á pizzur sem ég geri mjög oft en þá nota ég tortillakökur sem botn.

Hin eina sanna salsasósa

  • 4 stórir tómatar
  • 1 hvítlauksgeiri
  • 1/2 rauðlaukur
  • 1 ferskt rautt (fræhreinsað chili aldin)
  • 1/2 ferskt jalapeno – ef þú vilt hafa sósuna sterka (eða 4 sneiðar úr krukku)
  • safi úr 1 límónu
  • 25 gr kóríander (ein lúka)
  • salt og pipar
  1. Skerið allt hráefnið í bita og fjarlægið fræ, skelina af laukunum og stilka.
  2. Setjið hráefnið í matvinnsluvél og saxið eftir smekk.
  3. Saltið og piprið eftir smekk.

Salsasósa er algjörlega fitusnauð og inniheldur mjög fáar hitaeiningar.

DSC_4791 (1)

Mynd: Íris Ann

 

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *