Heimatilbúin klakaskál

Við Kalli maðurinn minn fórum í matarboð til gamals skólafélaga hans um daginn. Þetta fólk hafði ég aldrei hitt áður og vissi því ekkert á hverju var von. Sláturkeppir og hvítvín? Eða tofu og mysa?  img_20150710_004613

Ó mæ. Þau hittu mig beint í hjartastað. Ég er komin með matarást á þessu dásamlega fólki. Ekki bara eru þau listakokkar heldur hafa þau útbúið æðsilega sólstofu í lítilli viðbyggingu við húsið sem gerði matarboðið enn meira sjarmerandi. Húsbóndinn á heimilinu hefur ferðast mikið og er lunkinn við að kynna sér nýja matargerð. Hann var ekkert að slugsa við matagerðina og bauð upp á þrettán rétta persnenska veislu! Endirinn var svo ómótstæðileg heimagerð klakaskál full af ís og berjum!

frosin-skc3a1l

Skálin hélt ísnum köldum og gladdi svo sannarlega augað. Ég mátti því til með að finna út hvernig slík snilld er gerð.

Þú þarft:

  • Tvær álskálar. Önnur þarf að vera minni en klakaskálin verður til í holrúminu á milli skálanna
  • Eitthvað til að þyngja aðra skálina
  • Gott límband
  • Blóm, ber, ávexti eða annað til að skreyta innviði klakaskálarinnar með

skal-jpg

Skrautinu er raðað ofan í tóma stærri skálina. Ef þú ert að nota ber eða eitthvað sem tollir illa nema í botninum getur þú sett þau eftir að vatnið er komið í eða skorið þau í tvennt. Minni skálin er sett ofan í þá stærri og límt yfir til að halda henni niðri. Þungur hlutur til að vinna á móti vatninu er settur ofan í minni skálina. Athugið að hluturinn þarf að þola frost. Því næst er að hella köldu vatni ofan í stærri skálina. Að lokum getur þú bætt við skrauti ofan í vatnið. Skálin fer svo í frysti yfir nótt og þarf að standa bein. Þegar skálin er tilbúin skaltu láta volgt vatn renna á hana til að losa álskálarnar frá. Passaðu að setja bakka undir skálina svo vatnið af henni leki ekki út um allt.

lauf-jpgimg_6975

Skálin er tilvalin undir klaka, ís eða jafnvel drykkjarflöskur! 

ice_flower_bowls3

Svo má vel setja hvít blóm til að fá fallega skál í brúðkaupið.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *