Hollt og heilnæmt konfekt!

Fátt er betra en súkkulaði sem þú getur borðað án þess að fyllast af sálarangist og samviskubiti. Þetta konfekt er stútfullt af næringu og þú þart ekki að gráta í tvo tíma í sturtu með vírbursta þó þú laumist í nokkra mola á hverjum degi! Heimagert hrásúkkulaði er nefnilega fullt af andoxunarefnum, hollri fitu, járni og magnesíum. Konfektið er reyndar hitaeiningaríkt þó þetta séu vissulega „góðar“ hitaeiningar.

_DSC4510

 

Sykurlaust hrákonfekt

  • 140 g kakósmjör (t.d frá Sollu)
  • 30 g hnetusmjör
  • 30 g kókossmjör
  • 60 – 80 g hreint ósætt kakó (t.d frá Sollu)
  • 10 –15 dropar vanillustevía frá Via Health
  • 10 –15 dropar karamellustevía frá Via Health
  • 2 msk hunang eða agave síróp (má sleppa)
  • ¼ tsk sjávarsalt
  1. Kakó-, hnetu- og kókossmjörið er brætt í vatnsbaði. Ef þú finnur ekki kókossmjör er lítið mál að búa það til. Það er gert með því að setja ristaðar kókosflögur í matvinnsluvél ásamt 1 msk af kókosolíu. Vélin er látin ganga þar til flögurnar verða að smjöri. Einnig má nota meira af kakósmjöri í staðinn en kókóssmjör er einstaklega kremað og ljúft á bragðið.
  2. Þegar smjörið er bráðnað er því hellt í skál ásamt hinum innihaldsefnunum og hrært í nokkrar mínútur með gaffli þar til silkimjúkt og kekkjalaust. Gott er að hræra með gafflinum í 3–4 mínútur svo súkkulaðið verði mjúkt og fái fallega áferð. Smakkaðu þig endilega áfram með stevíuna og saltið.
  3. Þegar bragðið er orðið ómótstæðilegt er blandan sett í mót með skeið, t.d. sílíkonmót eða örsmá möffinsform. Séu hin síðarnefndu notuð má skreyta molana með goji-berjum, kókosflögum eða pekanhnetum.
  4. Því næst fara mótin inn í frysti í 30 mínútur. Passaðu að mótin séu bein á meðan molarnir stífna.

Best er að geyma molana í lokuðu íláti í frysti. Jafnvel læstu.

Mynd; Íris Ann
Borðbúnaður: BOHO

 

 

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *