Rauðrófu og bláberjabomba!


Það er meira en að segja það að reyna að borða meira grænmeti. Og þá helst fyrripart dags þar sem flestir borða grænmeti með hádegis og/eða kvöldverðinum. Ég er því að reyna að venja mig á að setja alltaf eitthvað grænmeti í morgundrykkinn minn og helst gera nægilega mikið magn til að geta tekið restina með mér í krukku sem millimál. Ef ég er að reyna hreinsa til í mataræðinu geri ég gjarnan tvo drykki á morgnanna, einn rauðan og einn grænan með slatta af spínati eða grænkáli í hádegisverð.
Úr eldhúsinu
Rauðrófu og bláberjabomba
- Undirbúningur
- 10
- Eldun
- 5
- Samtals
- 15
- Skammtar (1×)
- 2
Skjárinn slekkur á sér eins og venjulega.
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Aðferð
- Öllu skellt í blandara og blandað uns drykkurinn fær fallega áferð.
- Það er um að gera að prufa sig áfram með að bæta grænmeti við drykkinn. T.d ef þú átt afgangs salat frá kvöldinu áður er fínt að skella því út í. Ef bragðið er eitthvað hálf óspennandi má alltaf bæta meiri engifer eða sítrónusafa við.
EatRVK · https://eatrvk.is/2015/12/raudrofu-og-blaberjabomba/




Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.