Stevíustubbar

Þessar smákökur eru í hollari kantinum en svíkja engan. Eintóm hamingja og ekkert samviskubit, það er að segja ef þú getur takmarkað neysluna við tvö stykki á dag. Gangi þér vel með það.

Stevíustubbar

Þú ræður hvort þú notar strásætu t.d. frá Via Health og sykurlaust súkkulaði eða hrásykur, hunang og 70% súkkulaði.

  • 1 stórt egg
  • 120 g fínmalað spelt
  • 1/2 tsk lyftiduft
  • 1 tsk vanilla/vanilludropar
  • 100 g kókosolía (brædd)
  • 70 g stevíu-strásæta frá Via Health eða hrásykur (eða hunang (eða döðlumauk – á eftir að prufa það))
  • 30 dropar karamellu-stevía frá Via Health
  • 100 g haframjöl
  • 50 g kókosmjöl
  • 50 g saxaðar salthnetur
  • 100 g saxað súkkulaði (sykurlaust eða 70%)
  • 70 % Meira súkkulaði til að hjúpa – dökkt mintusúkkulaði frá Green & Black‘s er æði
  1. Öllu er hrært vel saman með sleif og kúlur mótaðar. Deigið á það til að loða illa saman en þá er bara að hnoða það aðeins í höndunum.
  2. Kúlurnar eru settar á plötu og þrýst ofan á þær með spaða.
  3. Bakað við 180 gráður í 10-12 mínútur.
  4. Kælið.
  5. Bræðið auka súkkulaði og stingið annarri hliðinni á kökunum ofan í og látið storkna á bökunarpappír.
  6. Geymist í kæli.

Þessar kökur eru bestar eftir sólahring í kæli og geymast vel í kæli eða frysti.

IMG_1878

Mynd: Tobba Marinós

 

 

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *