Trönuberjasósa sem slær í gegn

Trönuberjasósa er nauðsynleg með góðum kalkún eða öðrum veislumat, það verður allt svo fallegt á disknum þegar þessi dásamlega rauða sósa er sett á diskinn. Þessi sósa er hrikalega einföld og alveg unaðslega góð og svo er ekki slæmt að nota hana á jógúrtina daginn eftir.

Trönuberjasósa
Skrifa umsögn
Prenta
Innihaldsefni
  1. 1 poki af trönuberjum
  2. 1 epli saxað án hýðis
  3. 2 bollar góður eplasafi
  4. 1 kanilsstöng (má sleppa)
  5. 1 anis stjarna (má sleppa)
  6. 2 dl púðursykur
Leiðbeiningar
  1. Allt sett saman í pott og látið suðuna koma upp, lækkið þá undir og látið sósuna malla í um 10-15 mínútur.
Athugasemdir
  1. Gott er að gera þessa sósu daginn fyrir veisluna, hitið hana upp og bætið við eplasafa ef ykkur finnst hún of þykk. Þessi sósa er dásamleg á gríska jógúrt með pekanhnetum.
EatRVK https://eatrvk.is/

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *