Heimagert súkkulaði

_DSC4525

Mynd: Íris Ann

Þessir molar eru mjög fljótlegir og koma skemmtilega á óvart. Þeir eru ekki dísætir eins og venjulegt konfekt en duga vel ef þig langar í eitthvað sætt með kaffinu. Mér finnst ósköp gott að fylla þá líka með hnetusmjöri sem dæmi eða setja nokkra piparmintudropa í súkkulaðiblönduna. 

Sykurlaust súkkulaði
Skrifa umsögn
Prenta
Innihaldsefni
  1. 120 g kakósmjör
  2. 50 g hnetusmjör
  3. 30 g kókossmjör
  4. 60 g hreint ósætt kakó
  5. 10–15 dropar vanillustevía frá Via Health
  6. 10–15 dropar karamellustevía frá Via Health
  7. 2 msk hunang eða agave síróp (má sleppa ef þú vilt hafa þetta sykurlaust)
  8. ¼ tsk sjávarsalt
Leiðbeiningar
  1. Kakó-, hnetu- og kókossmjörið er brætt í vatnsbaði. Ef þú finnur ekki kókossmjör er lítið mál að búa það til. Það er gert með því að setja ristaðar kókosflögur í matvinnsluvél ásamt 1 msk. af kókosolíu. Vélin er látin ganga þar til flögurnar verða að smjöri. Einnig má nota meira af kakósmjöri í staðinn en kókóssmjör er einstaklega kremað og ljúft á bragðið.
  2. Þegar smjörið er bráðnað er því hellt í skál ásamt hinum innihaldsefnunum og hrært í nokkrar mínútur með gaffli þar til silkimjúkt og kekkjalaust. Gott er að hræra með gafflinum í 3–4 mínútur svo súkkulaðið verði mjúkt og fái fallega áferð.
  3. Smakkaðu þig endilega áfram með stevíuna og saltið. Þegar bragðið er orðið ómótstæðilegt er blandan sett í mót með skeið. T.d. sílíkonmót eða örsmá möffinsform. Séu hin síðarnefndu notuð má skreyta molana t.d. með goji-berjum, kókosflögum eða pekanhnetum.
  4. Því næst fara mótin inn í frysti í 30 mínútur. Passaðu að mótin séu bein á meðan molarnir stífna. Best er að geyma molana í lokuðu íláti í frysti.
EatRVK https://eatrvk.is/

One Comment on “Heimagert súkkulaði

  1. Pingback: Sykurlaus karamellu-bananafrappó | EatRVK

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *