Humarpizza með grænkáli og eplum

Ég elska humarpizzu en finnst oft vanta smá kikk í þær sem fást á veitingarhúsum. Um tíma bauð 101 Hótel upp á skemmtilega útgáfu af humarpizzu með ísbúa og grænum eplum. Síðan ég smakkaði hana hefur mér fundist humarpizzur hálf „boring“ ef það eru ekki nokkrar sneiðar af brakandi fersku grænu epli með. Sódavatn með sítrónu, kampavín eða ávaxtaríkt hvítvín er svo toppurinn með.

pizza

Humarpizza með grænkáli, eplum og parmesan
Ef ég hef ekki tíma í að útbúa deigið kaupi ég tilbúið heilhveitideig í Nettó. Það er meira að segja búið að fletja það út á bökunarpappír!
Skrifa umsögn
Prenta
Pizza
  1. Pizzadeig í eina væna pizzu
  2. 400-600 gr skelflettur humar
  3. Grænt epli
  4. Grænkál (eða klettasalat eða fjallaspínat)
  5. Graskersfræ (eða pistasíur)
  6. Pizzasósa (heimagerð eða eða keypt, þá kaupi ég helst Whole Cherry Tomato pastasósu frá Scala)
  7. Parmesan
  8. Ostur (Brauðostur, mozarella, pizzaostur - bara það sem til er. Ég frysti ostaafganga, ríf niður og nota.)
  9. 2 ferskir tómatar
  10. 3 msk smjör
  11. Fersk basilika
  12. Parmesansalt (frá Nicolas Vahé - fæst t.d hjá Jóa Fel.)
  13. Pipar
  14. Hvítlaukur
  15. Olía
  16. Sítróna
Hvítlauksolía
  1. 2 dl góð olívuolía
  2. 2 marin hvítlauksrif
  3. 1 msk rifinn sítrónubörkur.
Leiðbeiningar
  1. Fletjið deigið út á bökunarpappír og dreifið sósunni yfir.
  2. Skerið tómatana í tvennt og fjarlægið innihaldið. Annars verður pizzan of blaut. Skerið tómatana í litla báta og dreifið yfir botninn.
  3. Rífið ostinn niður og dreifið yfir botninn. Ég notaði 17% Sveitabita og ferskan mosarella.
  4. Humarinn er hreinsaður og þurrkaður.
  5. 3 msk af smjöri eru bræddar á pönnu ásamt tveimur smátt söxuðum rifjum af hvítlauk. Látið krauma í 2 mínútur og því næst fer humarinn út í.
  6. Humarinn er létt steiktur í um 2 mínútur og létt saltaður með parmesansaltinu dásamlega.
  7. Humrinum er hellt í sigti og en vökvinn settur í sér skál. Grænkálið er saxað og það hrært vel saman við vökvann og loks er restinni af vökvanum hellt af. Grænkálið verður meira djúsí ef það fær smá olíu eða smjör fyrir bakstur.
  8. Bakið botninn í 12 mínútur á 200 gráðu hita með aðeins sósunni, tómötunum og ostinum.
  9. Eftir 12 mínútur er graskersfræjunum, grænkálinu og humrinum bætt á og bakað á grilli í aðrar 2-3 mínútur uns pizzan fer að gyllast.
  10. Pizzan er nú tekin út og ferskum eplaskífum ásamt ferskum parmesan bætt við. Saltið og piprið og toppið með ferskum basil. Hellið að lokum örlítilli olíu yfir.
Athugasemdir
  1. Grænkálið er gott að væta í olíu eða smjöri fyrir bakstur svo það verði ekki eins og harðar flögur.
EatRVK https://eatrvk.is/
20151227_184219-01 (2)

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *