Silkimjúk berjabomba
Myndir: Íris Ann



Ég elska ostakökur og ferskar berjatertur. Sérstaklega með glasi af köldu ávaxtaríku hvítvíni eða rjúkandi kaffibolla. Þessi terta er ein af mínum uppáhalds og hefur verið í þróun um langt skeið. Þrátt fyrir að vera sykurlaus er þessi elska mjög vinsæl á heimilinu og klárast í öllum boðum. Jafnvel miðaldra sykurfíklar og geðvondir unglingar sleikja út um! Ekki skemmir fyrir að hún er pökkuð af hollri fitu, andoxunarefnum og steinefnum. En passaðu að missa ekki andlitið ofan í kökuna því eins og flestar hráfæðistertur er þessi kaka mjög hitaeiningarík þó þetta séu „hollar“ hitaeiningar sem líkaminn nýtir vel. Og ekki örvænta - þessi uppskrift er auðveld. Ég lofa!
Úr eldhúsinu
Hráberjaterta
- Undirbúningur
- 25
- Eldun
- 120
- Samtals
- 145
Skjárinn slekkur á sér eins og venjulega.
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Botn
Fylling
Aðferð
Botn
- Leggðu 200 gr af döðlum og 1 dl af gojiberjum eða apríkósum í volgt vatn í 10 mín.
- 2 dl af sesamfræjum og 2 dl af kókosmjöli fara í matvinnsluvél og malað þar til fínt.
- Vatninu er hellt af ávöxtunum og öllu svo blandað saman í matvinnsluvél.
- Salti og kakói bætt við. Ef deigið loðir illa saman skaltu bæta við 1 – 2 msk af vatni.
- Deiginu er svo þrýst niður í 23 cm smellumót eða sílíkonmót. Einnig er hægt að nota lítil möffins sílíkonmót ef þú vilt gera margar litlar kökur.
- Settu mótið inn í frysti á meðan þú útbýrð fyllinguna.
Fylling
- Helltu vatninu af kasjúhnetunum. Hneturnar fara í blender eða matvinnsluvél ásamt kókosolíunni og kókosmjólkinni og blandað þar til silkimjúkt. Því næst fer restin af innihaldsefnunum út í og blandað vel.
- Helltu blöndunni yfir botninn og láttu tertuna stífna í frysti í lágmark 2 klst.
EatRVK · https://eatrvk.is/2016/01/silkimjuk-berjabomba/



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.