Súkkulaði kínóakúlur

IMG_20160130_125620Þessar kúlur eru svo góðar að ég verð hálffúl ef einhver kemur í kaffi og ég þarf að deila þessum elskum. Þær eru mjög bragðmiklar og kínóapuffsið getur þeim skemmtilega áferð. Þeir sem elska „kökudeigs“ sælgæti og ís munu tryllast yfir þessum gleðisprengjum. Mér finnst best að gera þær litlar svo þær séu bara einn lekker munnbiti og þær eru bestar eftir hálftíma í frystir.

Kínóapuffsið fann ég í Nettó en það lítur svona út og má einnig nota sem morgunkorn eða út á grauta, jógúrt eða „nicecream.“ Þetta undrastöff er sykur og glútenlaust. NatureCrops_Quinoa

Sykurlausir súkkulaðiboltar
Hrikalega gott. Sko hrikalega og án viðbætts sykurs. Nammi namm!
Skrifa umsögn
Prenta
Innihaldsefni
  1. 2 msk hnetu- eða möndlusmjör
  2. sjávarsalt á hnífsoddi
  3. 10 dropar karamellustevía
  4. 100 gr mjúkar döðlur
  5. 1 dl hreint ósætt kakó
  6. 1 dl kókosolía
  7. 2 dl kínóapuffs
Leiðbeiningar
  1. Látið döðlurnar liggja í heitu vatni í korter.
  2. Hellið vatninu af og látið döðlurnar í matvinnsluvél eða öflugan blandara ásamt 1 dl af kókosolíu. Blandið saman uns verður að kekkjalausu deigi.
  3. Setjið restina af innihaldsefnunum, allt nema kínóapuffsið út í blönduna.
  4. Kveikið aftur á vélinni og vinnið hráefnin vel saman.
  5. Hellið blöndunni í skál og hrærið kínóanu varlega saman við með skeið.
  6. Kælið blönduna svo hún sé meðfærilegri áður en mótaðar eru litlar kúlur.
  7. Geymið hamingjuna í frysti og borðið þegar ykkur vantar orku og hamingjuskot! Eða þegar tengdó er með dólg. Þá má fá sér rauðvín með.
EatRVK https://eatrvk.is/

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *