Hafrakoddar með hnetusmjöri og heitt kakó

Ég kalla þessar elskur hafrakodda því ólíkt flestum klöttum eða hafrakökum eru þeir dúnmjúkir. Koddarnir bera með sér hnetusmjörskeim í bland við rúsínur og gleði. Góðir með morgunkaffibollanum og veita staðgóðar trefjar, holla fitu og orku inn í daginn. Dóttir mín elskar að fá eitt stykki eftir leikskóla á meðan við púslum og dreypum á heitu kakói. Þá er notalegt að hlusta á vindinn hamast á glugganum, kveikja á kertum og njóta þess að eiga hvor aðra að. Væmið en mikilvægt! Litlu hlutirnir eru oft svo dásamlega ljúfir og mikilvægir fyrir sálarlífið. 

20160210_135707

Hafrakoddar með hnetusmjöri og rúsínum
Dúnmjúkur og góðir! Þú getur bakað þá lengur til að fá "kex" áferð en mér finnst þeir skemmtilegir svona mjúkir. Þá henta þeir líka vel fyrir litla auma góma.
Skrifa umsögn
Prenta
Undirbúningstími
15 min
Eldunartími
10 min
Undirbúningstími
15 min
Eldunartími
10 min
Innihaldsefni
  1. 100 gr hnetusmjör
  2. 100 gr eplamauk eða epla/peru barnamauk
  3. 1 banani
  4. 2 egg
  5. 30 ml kókosolía
  6. 30 dropar vanilu eða karamellu stevía frá Via Health
  7. 1 tsk gott vanilluduft eða -dropar
  8. ½ tsk matarsódi
  9. ½ tsk lyftiduft
  10. 2 tsk kanill
  11. ¼ tsk sjávarsalt
  12. 130 gr hafrar
  13. 60 gr möndlumjöl
  14. 1 dl rúsínur, þurrkuð bláber eða epli
  15. 1 dl saxaðar hnetur - val- eða pekanhnetur
Leiðbeiningar
  1. Stappið bananana vel og hrærið eplamaukinu við.
  2. Því næst er hnetusmjörið hrært út í.
  3. Kanill, salt, vanilla, stevía, bráðin kókosolía, matarsódi og lyftiduft fara saman við.
  4. Eggjum er hrært við.
  5. Höfrum er hrært vel saman við.
  6. Möndlumjölinu er hrært við ásamt hnetum og rúsínum. Hrærið uns engar hnetur eða rúsínur eru óhuldar. Haha.
  7. Látið blönduna standa í kæli í 5 mínútur. Hún verður aðeins meiri um sig en á samt sem áður að vera blaut og klístruð, í ætt við hafragraut.
  8. Setjið með teskeið litlar deigklessur á bökunarpappír og bakið í 8 mínútur á 180 gráðu hita. Kökurnar þenjast úr eins og reið vöðvatröll enda eru þær stútfullar af hollri fitu og næringu og eru fullkomnar sem morgunbiti með kaffinu eða sem millimál.
Athugasemdir
  1. Orkuklattar fyrir duglega kroppa! Úr uppskriftinni fást sirka 30 kökur.
EatRVK https://eatrvk.is/
Sykurlaust kakó
Serves 2
Ljúft og sætt kakó án samviskubits.
Skrifa umsögn
Prenta
Innihaldsefni
  1. 250 ml fjörmjólk
  2. 250 ml kókosmjólk til drykkjar
  3. 15-20 dropar vanillu- eða karamellustevía
  4. 3 msk hreint ósætt kakó
  5. 2 tsk möndlu eða hnetusmjör ef vill
Leiðbeiningar
  1. Kakóinu er pískað saman við mjólkina í potti. Hitað en ekki látið sjóða.
  2. Þá er stevíunni og smjörinu bætt út í. Ekki er verra að skella matskeið af þeyttum rjóma út í bollann.
EatRVK https://eatrvk.is/

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *