Langar þig í ástfangið léttvín?

Við stelpurnar á EatRVK elskum léttvín og okkur finnst sérstaklega skemmtilegt að prufa ný vín. Tommasi hefur verið í miklu uppáhaldi upp á síðkastið en við elskum allar Ítalíu og nánast allt sem kemur þaðan. Við rákumst á þennan fallega gjafakassa í Vínbúðinni um daginn og splæstum í eintak. Í stuttu máli sagt urðum við vinkonur ekki fyrir vonbrigðum. Kassinn er ekki bara fallegur heldur er vínið afar bragðgott og heitir því skemmtilega nafni Romeo og Guiliette og vísar þar í frægustu ástarsögu heims en vínið er framleitt á sömu slóðum á Ítalíu.  EatRVK ætlar að gefa tvo gjafakassa af víninu góða – eina skilyrðið er að þú deilir því með einhverjum sem þú elskar. Og drekkir þig ekki til dauða! Og viðkomandi sé ekki sonur eða dóttir óvinar föður þíns.

13672_r

Tommasi Giulietta
Þrúgur: Pinot Grigio, Chardonnay & Garganega
Ilmur: Mikill ávöxtur og blómlegur angan
Bragð: Frísklegt og ávaxtaríkt með léttum ferskjukeim 
Ekta stáltankavín, Pinot Grigio þrúgan færir okkur hér ferskt og ávaxtaríkt vín.
Tommasi Romeo
Þrúgur: Corvina – Rondinella – Merlot
Ilmur: Ávaxtaríkt með kröftugum kirsuberjum og cappuccino
Bragð: Vín í góðu jafnvægi, ljúft með sætum kirsuberjum og súkkulaði í forgrunni
Fínlegt og fágað vín í góðu jafnvægi.
 

Við mælum með að þú horfir á hina klassísku mynd Rómeó og Júlía með Leonardo DiCaprio og Claire Danes, maulir eitthvað syndsamlega gott og skálir við ástina þína. Væmið – og virkilega mikilvægt. Ástin lifir ekki endalaust af sjálfu sér. Það þarf að gefa sér tíma, halda utan um hvort annað og muna af hverju þið eruð saman.
Skráðu þig á póstlistann okkar hér:

 

Við drögum mánudaginn 7. mars. Skál og gleðilega ást!

romeo-and-juliet

31 Comments on “Langar þig í ástfangið léttvín?

  1. Já takk
    Væri vel þegið að fá svona glaðning 😉

  2. Já takk ég myndi deila þessu með Maggi Þ Sigurjóns

  3. Já takk 🙂 èg og mamma myndum deila þessu saman <3 😀 krossafingur. btw yrdi flott afmælisgjöf þar sem ad èg á akkurad afmæli 7.mars 😀

  4. Já takk gaman væri að bjóða ástvinum og faga huggulega stund.

  5. Já takk, þetta eru verulega góð vín 🙂

  6. Alltaf gaman að vera ástfanginn sama hvað það er og að vera ástfanginn af sjálfum sér eru forréttindi og svo kemur svo margt á eftir. Já takk er astfanginn af Tomassi

  7. ❤️ Væri dásemd með ástinni minni ❤️

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *