Bragðmiklar ítalskar kjötbollur

Ég elska ítalskan mat og sérstaklega kjötbollur. Ég hef reglulega breytt uppskriftinni en hér er hún loks fullkomnuð. Bragðmikil með vott af basil, sítrónuberki og furuhnetum. Eintóm sæla – fitulitlar og próteinríkar kjötbollur!

Gott rauðvín er einnig must! Með þessu er æðislegt að hafa gott ítalskt vín á borð við Mezzacorona Merlot. Þá sjaldan að maður finnur fínt rauðvín á 1.699 kr!

Ítalskar kjötbollur
Dásamlegar bragðmiklar kjötbollur í hollari kantinum. Um að gera að gera tvöfaldan skammt og frysta þessi bjútí.
Skrifa umsögn
Prenta
Innihaldsefni
  1. 500 gr gott nautahakk - helst beint frá bónda
  2. 1 dl rasp - ég nota heimagert súrdeigsrasp en gott rasp fæst t.d. í Sandholtsbakaríi
  3. 1 laukur - mjög smátt saxaður (annars loða bollurnar illa saman)
  4. 1/2 geiralaus hvítlaukur
  5. 1/2 dl saxaðar furuhnetur
  6. 1 msk sítrónubörkur (ég læt sítrónuna örstutt í sjóðandi vatn - og passa að nota ekki hvíta hluta barkarins)
  7. 1 dl fersk basilika söxuð
  8. 1 stórt egg
  9. 1 msk ítölsk kryddblanda
  10. 1 dl parmesanostur
  11. Salt
  12. Pipar
  13. Heilhveiti
  14. Ólívuolía
Leiðbeiningar
  1. Saxið laukinn smátt og merjið hvítlaukinn í hvítlaukspressu. Setið í skál ásamt hakkinu, basilikunni, parmesanostinum, sítrónuberkinum, brauðraspinu, furuhnetunum og kryddinu. Saltið og piprið.
  2. Setjið eggið út í og hnoðið vel saman með höndunum.
  3. Mótið litlar bollur og veltið þeim upp úr heilhveiti svo þær loði betur saman. Setjið bollurnar á bökunarpappír og sáldrið örlítilli ólívuolíu yfir ef vill.
  4. Bakið bollurnar í miðjum ofni á 180 gráðum í 20-30 mínútur, eftir stærð.
Athugasemdir
  1. Borðið með góðri pastasósu, spaghettí ef vill og rifnum parmesanosti. Mér finnst líka fínt að sleppa pastanu og vera með salat eða grillað eggaldin í staðinn. Klettasalat með piccolotómötum, rauðlauk, ferskum mozzarella og sítrónuolíu finnst mér best með.
  2. Ég elska þessa uppskrift því mér leiðist svo að steikja bollurnar - það er líka mun óhollara.
EatRVK https://eatrvk.is/

 

 

 

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *