Bláberjalíkjör

_DSC4212

Myndir: Íris Ann

Þennan líkjör gerum við á mínu heimili gjarnan á haustin til að eiga fyrir jólin. Það er eitthvað svo dásamlegt að bjóða vinum og vandamönnum upp á glas af  heimagerðum líkjör í notalegu vetrarmyrkrinu. Líkjörinn má einnig nota í aðra kokteila, til dæmis í bláberja-mojito, í sódavatn eða jafnvel í sósuna. Þessi uppskrift er fljótgerð og svo einföld að allir geta gert hana. Mjög sniðugt er að setja þetta í litlar flöskur og gefa sem gjafir.

Bláberjalíkjör
Dýrðlegur bláberjalíkjör sem yljar.
Skrifa umsögn
Prenta
Innihaldsefni
  1. Bláber
  2. Sykur
  3. Krukka
  4. Kanilstöng eða anís-stjarna (má sleppa)
  5. Vodka
  6. Ath. magnið fer eftir stærð krukkunar
Leiðbeiningar
  1. Ef þú vilt setja kanilstöng eða anís stjórnu er best að setja hana í botninn á krukkunni fyrst.
  2. Settu bláber í þá krukku sem þú vilt nota, ég nota oftast krukku sem tekur um einn lítra.
  3. Fylltu krukkuna af bláberjum alveg upp í topp.
  4. Helltu sykri yfir svo krukkan fyllist alveg.
  5. Helltu vodka yfir allt og lokaðu krukkunni.
  6. Hristu krukkuna reglulega og geymdu hana á dimmum stað.
  7. Best er að geyma krukkuna í 2-4 vikur (mín regla: því lengur því betra).
  8. Þegar vínið er tilbúið seturðu grisju í sigti, hellir víninu í skál og tekur allt hratið frá. Helltu svo dásamlega líkjörnum í fallega hreina flösku.
Athugasemdir
  1. Líkjörinn geymist í allt að 9 mánuði.
EatRVK https://eatrvk.is/
_DSC4198 _DSC4205

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *