Dásamlegar amerískar pönnukökur

Um helgar er dásamlegt að skella í uppskrift af amerísku pönnukökunum. Hún tekur stuttan tíma að gera, er ódýr og svo er lítill sykur í henni. Ekki spillir fyrir að hún er svo einföld að börnin geta gert hana líka. Þessa uppskrift hefur þróast mikið í gegnum árin og er nú að mínu mati fullkomin. Hún er líka góður grunnur ef maður vill breyta til og skella bláberjum saman við eða súkkulaðidropum. EInnig er hægt að bæta við matarlit eða rauðrófusafa til að gleðja litlu krúttin. Ef það er afgangur af þessum gulllituðu gersemum þá nota ég þær í nesti sem skonsur, þær geymast mjög vel. Okkur finnst best að smyrja þær með smjöri og hella yfir gómsætu hlynsírópi, svo spillir ekki að hafa ferska ávexti með.pickerimage-8

Amerískar pönnukökur
Einfaldar, djúsí og dásamlegar pönnukökur.
Skrifa umsögn
Prenta
Innihaldsefni
  1. 2 egg
  2. 1-2 msk sykur
  3. 2 bollar hveiti
  4. 3 tsk lyftiduft, slétt fullar
  5. 4-5 dl mjólk eða kókosmjólk
  6. Klípa af salti
Leiðbeiningar
  1. Hrærið eggi og sykri vel saman.
  2. Sigtið þurrefnin og hrærið saman við eggjablönduna.
  3. Bætið mjólkinni saman við, einn dl í einu, og hrærið vel saman eða þar til blandan er laus við alla kekki.
  4. Hitið pönnuna og hellið á hana deigi úr ausu.
  5. Steikið þar til loftbólur fara myndast og snúið þá við.
Athugasemdir
  1. Ég nota alltaf pönnu með teflon húð (non-stick) svo ég þurfi ekki að setja smjörklípu á hana þegar ég steiki pönnukökurnar.
EatRVK https://eatrvk.is/

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *